A) Júlí 2010 | |
Vnr: s00055 | |
The Spy Next Door Fyrrum leyniþjónustumaðurinn Bob Ho fær nú erfiðasta verkefni sem hann hefur nokkru sinni fengið: að passa þrjú börn kærustu sinnar, sem eru allt annað en sátt við nýja kærastann. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00054 | |
Brothers Myndin segir frá bræðrunum Sam og Tommy Cahill. Sam er hermaður í Bandaríkjaher og er um það bil að fara í sína fjórðu ferð á vígvöllinn. Hann er giftur æskuástinni sinni, Grace (Portman), og eiga þau tvær ungar dætur saman. Sam hefur hins vegar ekki verið lengi í Afghanistan þegar þær fréttir berast Grace að þyrla sem hann var í hefði hrapað í vatn og er Sam talinn af, en lík hans finnst hvergi. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00053 | |
The Bounty Hunter Maður sem leitar uppi fólk gegn því að fá verðlaunin fyrir að finna það, uppgötvar að næsta fórnarlamb hans er fyrrum eiginkona hans, fréttamaður sem rannsakar morðmál.
Fljótlega eftir að parið hittist á ný, flækist það í æsileg ævintýri og þarf að leggja á flótta. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00052 | |
Shutter Island Myndin gerist árið 1954. Lögreglumaðurinn Teddy Daniels er að rannsaka hvarf morðkvendis sem slapp af geðsjúkrahúsi fyrir glæpamenn. Morðinginn er talinn vera í felum á hinni afviknu eyju Shutter Island. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00051 | |
The Wolfman Endurgerð klassískrar hryllingsmyndar frá 1941 með sama nafni. Í lok 19. aldar snýr Lawrence Talbot aftur til æskuheimilisins eftir að bróðir hans hverfur á dularfullan hátt. Lawrence sem hefur eytt mörgum árum í að gleyma skelfilegri barnæsku sinni og drungalegu þorpinu sem hann kom frá, þarf nú að horfast í augu við föður sinn og hræðileg örlög sín. Á meðan er hver þorpsbúinn á fætur öðrum myrtur og fulltrúi Scotland Yard fer að spyrja óþægilegra spurninga. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00050 | |
Crazy Heart Sveitasöngvarinn Bad Blake hefur lifað tímana tvenna og átt oft á tíðum erfitt líf. Hann hefur verið kvæntur allt of oft, verið allt of lengi á tónleikaferðum og drukkið allt of mikið áfengi í gegnum tíðina.
Þrátt fyrir þetta ræður hann ekki við sig og stofnar til enn eins sambands, nú með Jean, blaðakonu, sem uppgötvar hinn sanna Bad sem býr á bakvið tónlistarmanninn. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00049 | |
The Bad Lieutenant: Port of Call - New Orleans Terence McDonagh er lögreglumaður illa haldinn af eiturlyfja- og spilafíkn. Hann býr og starfar í New Orleans, eftir að fellibylurinn Katrina hafði gengið þar yfir. Terence rannsakar nú morð á fimm innflytjendum frá Senegal.
Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00048 | |
Valentine Pör og einstaklingar í Los Angeles sem tengjast öll á einhvern hátt, hætta og byrja saman á víxl. Allt tengist þetta álaginu og væntingunum sem fylgja degi elskenda í Bandaríkjunum,Valentínusardeginum. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00047 | |
Alice in Wonderland Hin 19 ára gamla Alice snýr aftur til undralands barnæsku hennar, þar sem hún hittir aftur gamla vini og lærir hver raunveruleg örlög hennar eru: að binda enda á harðstjórn rauðu drottningarinnar. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00046 | |
The Descent: Part 2 Sarah Carter (Shauna Macdonald) hefur gengið í gegnum algera vítisvist í áður óþekktum hellum í Appalachiafjöllum, þar sem vinkonur hennar lentu hver á eftir annarri í klónum á dularfullum verum sem leyndust þar niðri.
Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: 00046 | |
The Road The Road er byggð á virtri en umdeildri skáldsögu eftir Cormac McCarthy (No Country for Old Men) sem segir frá ferðalagi feðga í leit að betra lífi eftir heimsendi. Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Vnr: s00045 | |
It´s Alive It‘s Alive segir frá hinni ungu Lenore (Bijou Phillips), sem er á framabraut en ákveður að hætta í háskólanámi þegar hún kemst að því að hún er ólétt, og stofnar þess í stað til heimilis með kærastanum Frank Davis (James Murray). Hún eignast barnið og allt virðist ganga í sögu hjá hinni nýstofnuðu og hamingjusömu fjölskyldu – til að byrja með, í það minnsta.
Verð: 500 kr. (uppf. 29-07-2010)
 |
Apríl 2010 | |
Vnr: 00043 | |
Toy Story 2 Í Toy Story 2 hafa Woody og Buzz sæst frá því í fyrstu myndinni og er Woody að búa sig undir að fara í sumarbúðir yfir helgi með Andy, stráknum sem á öll leikföngin. Andy tekst því miður að rífa handlegginn óvart af Woody, sem leiðir til þess að hann er skilinn eftir uppi á hillu þegar Andy leggur af stað. Verð: 500 kr. (uppf. 22-04-2010)
 |
Vnr: 00042 | |
Toy Story Toy Story segir frá nokkrum leikföngum í eigu stráksins Andy, en þó sér í lagi Woody, gamaldags kúreka sem er leiðtogi leikfanganna af því að hann er uppáhaldsleikfang Andys. Þegar Andy er ekki nálægt lifna leikföngin nefnilega við og lifa sínu eigin viðburðaríka lífi.
Verð: 500 kr. (uppf. 22-04-2010)
 |
Vnr: 00041 | |
Julie & Julia Segir myndin frá Julie Powell (Amy Adams), sem ákveður einn daginn að prófa að matreiða allar 524 uppskriftirnar í matreiðslubók eftir Juliu Child (Meryl Streep), en hún ber nafnið „Mastering the Art of French Cooking“. Heldur Julie skrá yfir tilraunir sínar í þeim tilgangi að gefa út bók byggða á reynslunni, og hefur bæði skrásetningin og matreiðslan sjálf mikil áhrif á líf hennar og fólksins í kringum hana.
Verð: 500 kr. (uppf. 22-04-2010)
 |
Vnr: 00044 | |
Avatar Þar sem tveir heimar mætast þarf hann að velja hvoru megin hann stendur. Verð: 500 kr. (uppf. 22-04-2010)
 |
Vnr: 00040 | |
Where the Wild Things Are Where the Wild Things Are segir frá stráknum Max (Max Records), sem er einmana, skapstór og með mjög fjörugt ímyndunarafl. Eftir að hafa lent í kjánalegu rifrildi við móður sína strýkur hann að heiman. Hann hleypur burt og út úr húsinu, niður að strönd, finnur þar yfirgefinn seglbát og leggur af stað út á sjó. Eftir langa siglingu kemur hann að eyju og gengur á land. Þar hittir hann fyrir mjög undarlegar verur, m.a. hinn hvatvísa Carol, hinn milda Ira og stjórnsama kærustu hans, Judith.
Verð: 500 kr. (uppf. 22-04-2010)
 |
Vnr: 00039 | |
The Box Norma og Arthur Lewis, par sem býr í úthverfi ásamt ungu barni sínu, fá gefins einfaldan trékassa, sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Dularfullur ókunnugur maður segir þeim að kassinn muni færa eiganda sínum eina milljón dala ef ýtt er á einn hnapp. En þegar ýtt er á hnappinn muni samstundis ein manneskja einhversstaðar í heiminum deyja; einhver sem þau þekki ekki. Verð: 500 kr. (uppf. 22-04-2010)
 |
Vnr: s00038 | |
Milk Myndin Milk er byggð á sannri sögu stjórnmálamannsins og mannréttindafrömuðsins Harvey Milk, en hann braut blað í sögu Bandaríkjanna þegar hann var fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn sem kosinn var til opinbers embættis í landinu. Var hann kosinn til setu í borgarráði San Francisco árið 1977, en kjör hans olli fljótt mikilli ólgu og deilum sem náðu víða um borgina og jafnvel allt Kaliforníufylki.
Sean Penn leikur Milk sjálfan, en myndin segir frá síðustu átta árunum í lífi hans og hefst í New York, þar sem Harvey hefur átt erfitt með að fóta sig vegna fjandsamlegra viðhorfa í hans garð. Verð: 500 kr. (uppf. 22-04-2010)
 |